Með reynslu !!!!!!

Nú get ég ekki orðabundist og gerist það  ekki oft eins og þeir  vita sem mig þekkja. 

Mikið er búið að setja út á stöðuveitingar hjá ,,Framsókn" síðustu árin þó svo  ég ætli ekki að taka upp hanskan fyrir þá enda ekki af því sauðahúsi !

En nóg fannst mér þeir fara illa með hann bróður minn á sínum tíma, mann sem er til fyrirmyndar í því sem hann tekur sér fyrir hendur,alger reglumaður og alltaf til taks fyrir þá! 

Já, en nú er það ekki FRAMSóKN sem sér um sína þegar er um stöðuveitingar er að ræða. Og hvað gerist?

Nú er nóg að vera með reynslu.

En hver er ekki með reynslu sem komin er á miðjan aldur.  Nú síðast var sett í stöðu Forstöðumanns Litla Hrauns og hef ég ekkert út á i Margreti Frímannsdóttur að setja þó síður væri. Hún er jú eins og alþjóð veit, mæt og góð kona.

En hvað er ekki hægt að komast langt á sínu gamla og góða ,,Gagnfræðaprófi" er við höfum reynslu, já reynslu!!!!!!!

 

Tíminn líður hratt

 

  Þá er komið nýtt ár enn einu sinni.

Það sem minnti mig á hvað tíminn líður hratt, er GEISLADISKUR sem ég fékk um jólin frá yngsta bróður mínum þar sem hann blæs til þriggja daga hátiðar í júní nk. þegar hann verður 50 ára .

 Að sjálfsögðu verður hún (hátíðin) haldin á æskuheimili okkar á Grund í Súðavík.

Á disknum eru gamlar og góðar  myndir frá uppvexti okkar sem teknar eru við hin ýmsu tækifæri og var ekki laust við að ég táraðist við að sjá þær er ég hugsaði til bernsku okkar.

Einnig eru stórkostlegar myndir sem sýna hvað Álftafjörðurinn okkar við Djúp er fallegur og lognið þar er engu öðru líkt.

Ég hlakka mikið til sumarsins.

 


Prestaskrif

Ég er örugglega ekki ein um það aðgera sérstaklegar kröfur til presta um að vera til ,,fyrirmyndar" á hinum ýmsu sviðum fyrir börn,unglinga og jafnvel alla menn í tali ræðu og riti, orði og verki.  Og varð ég því fyrir vonbrigðum er ég las ,annarsvegar blogg séra Svavars Alfreðs Jónssonar með yfirskriftinni,,jólanótt"  og hefst svo:  jólalambið meig svo sannarlega í munni. Mér finnst þetta mjög óviðeigandi lýsing á gæðum matar, ekki bara á jólum heldur altaf.Hvaða bragð er þetta sem presturinn er að lýsa? Og aldrei hef ég heyrt annað eins. Hinsvegar las ég skrif  séra Baldurs Kristjánss. á Hornafjörður.is hinn 24.des. sl.í greinaflokknum jólagestir og þar segjir meðal annars ,,stundum þegar ég hef verið í makaleit" hef ég þótst vera góður í eldhúsinu osfrv. Skemmtilegt fyrir börnin hans sem fullorðin eru orðin eða núverandi eiginkonu. Hvað finnst ykkur? 

Gleðileg jól!

Á Þorláksmessu komum við systkinin öll saman í hádeginu hjá Jóa (kokk) bróður okkar ásamt fleiri fjölskyldu meðlimum og á borðum var skötustappa að vestf. sið ásamt fleira góðmeti fyrir þá ,,sérvitru"sem ekki borða stöppuna.Eins og venjulega hjá Ólöfu og Jóa ákaflega notaleg samverustund stór fjölskyldunnar.Fórum við hjónin svo að venju með jólagreinar til látina ástvina sem hvíla í kirkjugörðunum hér og hinna minnst sem annarstaðar hvíla..Svo rann upp aðfangadagur,og byrjuðum við á því að fara með pakka til þriggja einsæðinga sem dvelja á sjúkrastofnun,og þegar heim var komið birtust barnabörnin fljótlega að sækja jólapakkana sína.Klukkan sex vorum við svo mætt í Lambaselið til Gísla sonar míns og konu hans Bjarkar Ínu ásamt börnum þeirra sem eru Hrannar Logi ,Elma Dröfn og Maren Rún.Einnig var mætt á staðin dóttir mín Kristin sem býr á Akureyri ásamt nýjasta fjölskyldumeðlimnum tíkinni,,Bríeti"sem nú upplifði sín fyrstu jól.Maturinn var ,,DÁSAMLEGUR" og kvöldstundin yndisleg!

Til umhugsunar fyrir jólin!

     

Maður nokkur skammaði þriggja ára dóttur sína fyrir að eyða  heilli rúllu af gylltum pappír,þegar hún var að reyna að skreyta lítið box.Ekki var mikið til af peningum til og honum þótti hún vera of ,,eyðslusöm".Stúlkan setti samt  boxið undir jólatréð,og á Aðfangadagskvöld færði hún pabba sínum það í ,,jólagjöf". Þetta er handa þér elsku  pabbi minn,við þetta skammaðist faðirinn sín fyrir viðbrögð sín daginn áður.Reiði hans gaus þó upp að nýju ,er hann sá að boxið var tómt! Hann kallaði til hennar ,, veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf ! - þá á eitthvað að vera í henni "Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin  í augunum og sagði: Ó elsku pabbi minn , boxið  er ekki tómt,- ég blés fullt af kossum í það , bara fyrir þig, .pabbi minn " Faðirinn tók utan um litlu stúlkuna sína og bað  hana fyrirgefningar um leið og hann þakkaði henni fyrir  bestu gjöfina sína..  

 Í vissun  skilningi höfum við allar,, manneskjur "tekið á móti boxum frá börnunum okkar full að skilyrðis-lausri ást og kossum .Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta handfylli af minningum-og þær munu verma hjarta þitt !


Þorláksmessa nálgast!

Nú líður að þorláksmessu og þá komum við systkinin frá Grund oftast saman hjá bróður okkar Jóa ,,kokk"og hans ágjætu konu Ólöfu í hádeginu.Við borðum að sjálfssögðu vel kæsta skötustöppu ávestfirzka vísu,með viðeigandi meðlæti og eigum notalega stund saman,umræðan er gjarnan um bernsku ár okkar í Súðavík.Á meðan Kristín mín bjó á Snorrabrautinni var alltaf opið hús hjá henni seinni partinn á þorláksmessu og súpa í boði,einn af bestu vinum barna minna Gunnar Jónsson (Gussi)hjálpaði henni við eldamennskuna.  Kristín flutti á Akureyri en Gunnar vinnur á Kaffi Oliver og hefur fundið upp nýja súpu ,,HANGIKJÖTSúpu" sem boðið er uppá á Oliver.Til hamingju Gunnar! 

Hugsum um náungan-jólin koma!

  Ég var að lesa það sem ICEKEKO(Þói Gísla)skrifar,gott framtak hjá honum að vekja athygli á þessum málum.Hvað er að gerast í okkar þjóðfélagi,fólk liggur látið heima í viku eða vikur án þess að nokkur vitji um það.Eða hnígur niður út á götu og fólk bæði gengur og keyrir framhjá án þess að veita aðstoð. Hvar er náunga - kærleikurinn,því hugsum við ekki betur um hvort annað? Þói þú átt heiður skilið fyrir  að vekja máls á þessu,svona rétt fyrir jólin þegar fólk er að missa sig í,,jólagjafakaupum".

Með Flensu !

Mér leið mjög illa í allan  gærdag.vaknaði með höfuðverk beinverki og hjartsláttar -truflanir.Svo það var ekki gera í stöðunni en liggia í rúminu og láta sér batna sem allra fyrst.

Komin heim frá Köben!

Ferðin heppnaðist mjög vel, og góð samvera með ferðafélögunum fjórum sem bjuggu með okkur á Röde-Mellemvej 16, hjá henni Vilborgu.Við fórum í Tívolí, og ég komst í ,,RÚSSÍBANAN" þökk sé Kolbeini sem fór með mér ,og voru 50 ár frá því hann fór síðast! Náði mér svo í mjög slæmt kvef, svo ég lá í rúminu síðasta daginn .En mér tókst að versla allar jólagjáfir og líka afmælisgjafir  fyrir janúarbörnin.                              

Að elska er að lifa!

 Elsku IJA ÉG BIÐ GÓÐAN GUÐ AÐ GEFA YKKUR STYRK ! Við vitum að það er gerður manna-munur við innlögn inn á Vog!

En sannleikurinn er mjög harður húsbóndi en hann stendur samt með okkur ! Lygin er þægur þjónn,en þægi þjónninn breytist auðveldlega í ,,harðstjóra" sem svíkur okkur á örlaegastund.G.D

Farðu vel með mínúturnar,klukkustundirnar sjá um sig sjálfar.

Heyrumst þegar ég kem frá Köben! ( Svanna)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Svanfríður Guðrún Gísladóttir

Höfundur

Svanfríður Guðrún Gísladóttir
Svanfríður Guðrún Gísladóttir
Er Þroskaþjálfi, að mennt, gift og á tvö börn, fósturdóttur og barnabörnin eru 6

Nýjustu myndir

  • Svanna 087
  • Svanna 078
  • Svanna 089
  • Sirrý004
  • HPIM1878
  • HPIM1883
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband