29.11.2007 | 18:46
Á LEIÐ Í ,,TÍVOLÍ" framhald :
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.11.2007 | 18:12
Á leið í ,,Tívolí"
Við hjónin erum að fara til Köben á laugardagsmorguninn, og verðum þar í 5 daga.Ég hlakka mikið til eins og alltaf þegar ég kem þangað og finnst é vera komin heim eftir að við bjuggum þar á árunum1994-95.Toppurinn verður að hitta hana Evu sem ég sá síðast hér á Íslandi 1977og að fara í ,,Rússibanan"í Tívolí .En að fara þangað finnst mér alltaf vera toppurinn,en nú er svo stutt síðan ég var á Hjartadeildinni,að ég er búin að lofa dóttur minni að hringja niður á deild og vita mvort mér er ,,óhætt að fara í ,,Rússíbanan".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2007 | 01:42
Meira um (jóla) kvíða!
Þakka þau ráð sem ég hef fengið frá ykkur við ,,jóla"kvíða en eins og ég sagði ykkur er ég kvíðin allt árið, en verstur er hann í desember.Hún Íja( Ásthildur) kemst næst því hvar vandans er að leita.(að ég held, Íja sagði ég þér leyndarmál þegar við vorum unglingar?).Enn kvíða hef ég haft síðan fyrst ég man eftir mér.Og ef ég hef ekki verið inni liggjandi á sjúkrahúsi,þá hef ég verið að vinna þar.En og aftur góð ráð eru vel þegin. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.11.2007 | 11:08
JÓLAKVÍÐI!
Frá barnæsku hef ég þjáðst af ,,óútskýranlegum"kvíða mis miklum en nær hámarki í desember.Ég glöðust af öllum þegar jólin eru komin, en strax í janúar byrjar kvíðinn á ný, en er í lámarki . Ég bý við heimilis öryggi á yndislegan mann, börn og barnabörn.,og er búinn að leita ýmissa ráða en ekkert hefur dugað mér til þessa .Ef einhver hefur góð ráð fyrir mig ,eru þau vel þegin. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.11.2007 | 13:03
Að fá sér hund!
Dóttir mín sem býr á Akureyri kom suður í gær,og fór snemma morguns til Selfoss að sækja sér hvolp.Hún er búin að koma nokkru-sinnum suður til að heimsækja hana,sem hlotið hefur hið fallega nafn,,Bríet"og er að Cavalier King Charles spanier ætt .Heimaland hans er England,en almennt er talið að hann eigi ættir sínar að rekja til Kína eða Japan.Er skemmst frá því að segja að mikil eftir -vænting hefur ríkt í fjölskyldu okkar síðustu vikurna.Og hvílík ,,ást og ummhyggja"sem skein úr augum dóttur minnar er hún kom með hana til okkar áðan.Ég býð Bríeti velkomna í fjölskyldu okkar.Við dóttur mína segji ég enn og aftur til hamingju,og góða ferð heim ,farið varlega!mín sem býr á Akureyri ,kom suður í gær,því hun fór snemma morguns að sækja hann til Selfoss
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2007 | 17:29
Alla þá sem eymdir hrjá,er yndi að hugga !
,,Bágt á hinn blindi" segir gamall málsháttur. Og oft á sá líka erfitt, sem gamall er og ellihrumur. Já bágt á líka, sá sem veikur er. Við eigum að vera góð við hvort annað, ekki síst við þá sem eitthvað er að. Leiðið hinn blinda, sem þarf aðstoðar við, ef hann biður þig um hjálp. Verið vingjarnleg við ,,eldriborgara" og gerið þeim greiða, ef þeir óska eftir því, við stöndum í mikilli þakkar-skuld við þá. Oft gerum við okkur ekki grein fyrir því fyrr en það er orðið of seint, að við hefðum kannski getað létt einhverjum lífið. Nú líður að ,,jólum" og desember fer í hönd, verum góð við hvort annað, réttum þeim hjálpar hönd sem þurfa þess við. Þá öðlumst við frið hið innra! Alla þá sem eymdir þjá, er yndi að hugga, og lýsa þeim, sem ljósið þrá, og lifa í skugga. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2007 | 12:41
Vísindaleg uppgötvun!
x
N:J Stovell var alþekktur sem ákveðinn ,,Guðsafneitari.Hann var einn af allra fremstu vísindamönnum Bandaríkjanna Norður-Ameríku. Höfuð viðfangsefni hans voru rannsóknir á hinum óþekktu öflum kjarnorkunnar og tilraunir til að komast að skýringum á þeim.Hann reyndi að staðaldri nýjar leiðir,sem ekki höfðu verið farnar á þessu sviði fyrr.Við eina af þessum tilraunum komst hann að mjög merkilegum niðurstöðum , sem breyttu algjörlega lífsskoðunum hans.Hann hafði verið fram að þessu,,Guðleysingi".,og hélt að Guð væri bara fyrir hina trúuðu og aðeins til í imyndun þeirra og hugarburði.Hann gat ekki hugsað sér ,að trúa á kærlegsríkan Guð.Nú varð hann glaður ;;kristinn"maður,og trúði á jesú krist!Þetta sýnir okkur enn einu sinni að Guð fer ekki í manngreinar álit!
Afstaðan til Guðs er stundum eins og til kennarans:maður horfir niður í borðplötuna til að verða ekki tekinn Upp!
Bloggar | Breytt 21.11.2007 kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2007 | 12:14
Sá lærir sem lifir!
Ég hef lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu dimmt virðist yfir öllu í dag,lífið heldur áfram og á morgun kemur nýr dagur.Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum við til með að sakna þeirra,þegar þau eru horfin á braut.Ég hef lært,að það að verða sér úti um peninga eða hluti,er ekki það sama og skapa sér gott lif!Ég hef lært að stundum gefur lífið okkur annað tækifæri.Ég hef lært að þó eg sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum hjálpar- -hönd MUNUM AÐ VERA GÓÐ HVORT VIÐ ANNAÐ! |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2007 | 04:43
AÐ VERA ÁNÆGÐUR MEÐ LÍTIÐ !
,,Þú ert alveg ótrúlega vel á þig komin," sagði læknirinn við eldri karlmann sem kominn var í árlegt eftirlit hjá honum. .Hvað ertu nú aftur gamall, Jón minn? Ég er 78 ára svaraði hann.Hvernig ferðu að því að halda þér svona vel? Þú lítur út eins og ,,sextugur".Jón svaraði,þegar við hjónin giftum okkur fyrir fimmtíu og tveimur árum, gerðum við samkomulag um að í hvert sinn sem okkur yrði sundurorða ,þá færi konan inn í eldhús til að ná sér niður,en ég færi út úr húsinu þangað til hún væri búin að,,jafna"sig. Það er gaman að heyra hvernig þið hafið leyst málin vel ,en hvernig skýrir það þessa góðu heilsu þína ?Ég hef varið mestum hluta ævi minnar í ,,útivist".svaraði Jón .EKKERT GETUR GERT ÞANN MANN 'ANÆGÐAN SEM EKKI ER 'ANÆGÐUR MEÐ LÍTIÐ! |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2007 | 10:16
Hamingjuóskir!
Ég óska herra Sigurbirni Einarssyni biskup ,hjartanlega til hamingju með ,,Verðlaunin". Ég hrærðist mjög er er é sá þennan virðulega aldna mann í sjónvarpinu í gærkvöldi. Eiginn er betur komin að þessum verðlaunum en hann. Verum í deginum í dag og gleðjumst með honum.
Ég sá Herra Sigurbjörn fyrst í Læknisbústaðnum í Súðavík (sem þá var okkar Prestbústaður) á heimili dóttur sinnar Rannveigar og manns hennar séra Bernharðs Guðmundssonar sem þá var sóknarprestur okkar Súðvíkinga.Það átti að fara að ,,vígja" Súðavíkurkirkju,ég lá þá á Sjúkrahúsinu á Isafirði ásamt Ingu Laugu heitinni Albertsdóttur og fengum við leyfi til að að fara með Guðjóni Sigurkarlssyni lækni,til að vera við vigslu kirkjunnar .Er skemmst frá því að segja að vegna óveðurs varð að fresta vígslunni. Síðan hef ég alltaf borið virðingu fyrir okkar ástsæla biskup HERRA Sigubirni Einarssyni Til hamingju séra Sigurbjörn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Svanfríður Guðrún Gísladóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar