27.10.2008 | 11:41
Mig vantar ,,PUNG".
Jæja þá læt ég heyra frá mér aftur,harði diskurinn fór í tölvunni hjá okkur,en maðurinn minn er búinn að gefa mér ,,fartölfu" svo nú er mér ekkert að vanbúnaði eða hvað?
Jú mig vantar ,,pung" er mér sagt til þess að hafa netsamband þegar við erum í (sumar)húsinu okkar sem er niður í Selvogi.Þar erum við jafnvel oftar um vetrar tíman,en yfir sumarið,svo nú kemst ég ekki hjá því að fá mér þennan ,,pung" EF ÉG VIL VERA Í SAMBANDI VIÐ UMHEIMINN.En það urðu svolítið skrítnar umræður hér milli okkar hjóna einn daginn þegar hann kom heim og ég sagði honum hvað mig vantaði.Helgi minn sagði ég við hann ég þarf að fá mér ,,pung" til að vera í góðu sambandi, hættu þessari vitleysu Svanfríður mín,er samtalinu lauk var ég búin að koma honum í skilning um hvað væri að ræða.Svo vonandi fæ ég punginn sem fyrst,og verð þá komin í fullt samband aftur.
Um bloggið
Svanfríður Guðrún Gísladóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.