Munum eftir þeim sem sjúkir eru ,það gæti verið of seint!

Nú fer sá tími í hönd sem mörgum reynist erfiður ,ekki síst þeim sem búa við heilsuleysi.EFTIR ÞEIM ÞURFUM VIÐ AÐ MUNA ALLT ÁRIÐ UM KRING EN EKKI BARA FYRIR JÓLIN ÞÓ ÞAÐ SÉ GOTT.Ég þekki af eigin raun að þurfa að dvelja langdvölum á sjúkrastofnun mest 2ár samfellt( 1965-67) langt í burtu frá foreldrum ,systkinum og henni ömmu minni sem orti svo fallega til mín:

        Viðmótsþýð og létt í lund

        löngum yndi vekur

       er þú kemur á minn fund

       angrið frá mér hrekur.

              ------------ 

Því hef ég alltaf reynt að vera dugleg að heimsækja fólk sem þarf að dvelja fjarri heimilum sínum vegna veikinda .Mér er þetta ofarlega í hug nú,því  í vikunni fylgdum við hjónin vini okkar til margra ára til grafar,hann þurfti að dvelja á sjúkrastofnun síðustu árin vegna  MS sjúkdómsins.Og þegar hann varð 60 ára vorum við einu vinirnir sem heimsóttum hann,en að sjálfsögðu voru börnin hans móðir og systkini þar og umvöfðu hann kærleika sínum .Hvar voru allir vinirnir sem hann þekkti þessi ljúfi drengur? þegar halla tekur undan fæti  láta vinirnir sig æði oft hverfa,og það varð raunin hjá hans vinum.Því varð ég sár innra með mér fyrir hans hönd í kirkjunni þegar ég sá allt fólkið,,Hvar voruð þið þegar hann þurfti á ykkur að halda?Því segji ég við ykkur sem lesið þetta verið dugleg að heimsækja þá sem sjúkir eru og /eða sorgmæddir (ekki bara á jólunum)  .Það velur sér engin það hlutskipti í lífinu að missa heilsun .                   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Líney

Hjartanlega  sammála  þér,vinir eru eitthvað sem ég þekki ekki lengur fyrir margra  hluta sakir td vegna  barna minna,það vill engin umgangast   erfið börn heima  hjá þeim og  mjög erfitt að fara  með þau í heimsóknir,þannig að  ég hef einagrast mjög,það þykir mér slæmt.

Takk fyrir skilaboðin,ég er búin að svara  þeim.

Vil senda þér knús  og kærleik og megir þú njóta dagsins

Líney, 19.11.2008 kl. 08:24

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndisleg færsla Svanna mín, og svo sönn.  Takk fyrir þessa hugvekju.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.11.2008 kl. 12:45

3 identicon

Hjartalega sámála þer svanfríður mín. kveðja Rut

Rut (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Svanfríður Guðrún Gísladóttir

Höfundur

Svanfríður Guðrún Gísladóttir
Svanfríður Guðrún Gísladóttir
Er Þroskaþjálfi, að mennt, gift og á tvö börn, fósturdóttur og barnabörnin eru 6

Nýjustu myndir

  • Svanna 087
  • Svanna 078
  • Svanna 089
  • Sirrý004
  • HPIM1878
  • HPIM1883
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband